Prófíll

  • Nafn: Kristín
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Heimavinnandi
  • Hjúskaparstaða: Sambúð
  • Um mig: Ég heiti Kristín og er tveggja barna móðir:) Er í viðhaldi eins og er eftir 1 árs átak, er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera við þessa síðu en vonandi mun það koma í ljós fljótlega:)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Blogg fallega fólksins...systra blogg!!

11. apríl 2007 klukkan 22:59
   Eins og fyrirsögnin segir er þetta blogg fallega fólksins, tvær fallegar systur sem að blogga. Bloggið snýst aðallega um mat...danskan mat...eða kannski íslenskan mat að dönskum hætti!
  
  Við systurnar mættum galvaskar á fund hjá íslensku vigtarráðgjöfunum og þar sem við erum báðar nokkuð fljótfærar vorum við búnar að greiða 4.000 króna skráningargjald áður en við vissum af. Eftir að hafa staðið í röð í 15 mínútur kom að okkur að stíga á vigtina en áður en við komumst svo langt þurftum við að borga skráningargjaldið...sniðug aðferð hjá vigtarráðgjöfunum:) Eftir vigtunina hélt fundurinn áfram og eftir því sem leið á hann þyngdist skapið!

   Það er ekki lítið mál að vera á "danska kúrnum", það er heljarinnar mál en þar sem við vorum búnar að borga skráningargjaldið þýddi lítið annað en að eyða deginum í að smella saman matarplaninu.

   Sem sagt við erum komnar með þetta fína plan og málið er bara að byrja á morgun:) Við erum reyndar ekki alveg að fatta hvernig við eigum að borða allan þennan mat og hvað þá að grennast af því en það á allt saman eftir að koma í ljós.
  Tilhlokkunin og bjartsýnin er mikil og svo er bara að bíða og sjá.

   Stefnan er tekin á 35 kg...við ætlum að verða ekki bara fallegar heldur ofurfallegar 35 kílóa stelpur...það stendur í bókinni sem við fengum að allt sé hægt ef að viljinn er fyrir hendi...sjáum til með það!

   Ég get allavega ekki beðið eftir því að fá að borða allan þennan góða mat og læra kannski í leiðinni að elda...Hulda þarf ekki að læra elda, hún er snillingur en það þarf ég hins vegar...allavega "flókin" mat!

   Matarplanið er hér til hliðar og ætlunin er að fylgja því í einu og öllu og verður bara gaman að sjá árangurinn.

   heyrumst.....Kristín