Prófíll

  • Nafn: Kristín
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Heimavinnandi
  • Hjúskaparstaða: Sambúð
  • Um mig: Ég heiti Kristín og er tveggja barna móðir:) Er í viðhaldi eins og er eftir 1 árs átak, er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera við þessa síðu en vonandi mun það koma í ljós fljótlega:)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Ég er snillingur:)

22. apríl 2008 klukkan 11:24
Hóhóhó:D
Mér tókst með ótrúlegum hætti að skilja stærðfræði, margliðudeiling...bring it on;) Ég lá yfir þessu dag og nótt (smá ýkjur) fyrir prófið því ég ætlaði að ná. Ég náði ekki bara heldur fékk ég 9,2...snillingurinn sem ég er. Þá er ég búin með 5 einingar í stærðfræði á hva 1 1/2 mánuði, ekki slæmur árangur það.
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að maður verður gáfaðri með aldrinum, hæðsta einkunn sem ég hef fengið á lokaprófið í stærðfræði hingað til er 6. Eina útskýringin sem ég hef er að gáfur aukast með hækkandi aldriUllandi.
Nú er það íslenskan og mikið er hún leiðinleg, þá vil ég heldur reikna...aldrei bjóst ef ég við því að eiga eftir að segja eitthvað þessu líkt. Er sem sagt í Orminum langa þessa dagana að lesa Eddukvæðin. Atlakviða, hverjum datt þetta rugl í hug? Að lesa 140 bls af kvæðum á einni viku er ekki svo gaman, ég var orðin rangeygð hérna um helgina og alveg við það að fara gubba. Svo kom að því að leysa verkefni úr öllum kviðunum, jújú ég var búin að lesa allar 140 bls en vissi ekki svarið við einni einustu spurningu (nema jú það sem ég vissi fyrir). Hver er þá tilgangurinn í að lesa kvæði sem maður skilur hvorki upp né niður í. Þrymskviðan er reyndar nokkuð einföld og augljós en hún er víst með yngri kvæðunum. Annað er bara tómt rugl:)

Svo er það auðvita "Gott mál", ég hef nú haldið því fram hingað til að ég sé frekar fær í íslensku og nokkuð vel að máli komin. Ég hef þó komist að öðru undanfarna daga þegar ég hef verið að leysa verkefnin í "Góðu máli", ég hef vaðið í villu fram að þessu. Það er t.d. ekki rétt að segja *villu vegar* heldur segir maður *vill vegar*. Hún fór *vill* vegar og þær fóru *villar* vegar.
Meira ruglið, ég greinilega kann ekki gott mál.
Eftir íslenskuna er það svo líffræðiÓákveðinn. Snillingurinn ég skráði mig á raunvísindabraut, hvað ég var að pæla er ég ekki alveg viss á. Jú reyndar, ég var svo yfir mig stolt af því að hafa lært stærðfræði, margliðudeilingu og allt þetta að ég var alveg með það á hreinu að fyrst ég gat lært það þá gæti ég alveg lært að vera ljósmóðir. Tekið hjúkkuna með trompi og ljósuna með annarri, hvort ég get það á eftir að koma í ljós.
Ég og vinkona mín sem er með mér í bekk vorum svo uppfullar af sjálfum okkur að við skráðum okkur bara á raunvísindabraut og dreymdi dagdrauma um leið...við að taka á móti fullt af börnum.

Það er eins gott að ég get eitthvað í allri þessari líffræði og efnafræði, það kostar nefnilega hellings peninga að ná því ekkiUllandi.
Eftir að líffræðinni líkur er annað hvort pása fram í ágúst eða pása í smá tíma og svo sumarskóli, 10 einingar á 3 vikum. 5 í stærðfræði og 5 í ensku. Fer allt eftir því hvort ég fái námslán eða ekki hvort ég taki sumarskólann...glatað að eiga ekki nokkra *hundrað þúsund kalla* undir koddanum.

Annarrs er bara fínt að frétta af vigtinni, held mér bara alltaf í sömu þyngd. Hef farið aðeins niður, þó ekkert alvarlegt en er þá bara þeim mun duglegri að borða daginn eftir. Fór í afmæli á sunnudaginn og borðaði í afmæli í fyrsta skipti síðan ég byrjaði á danska. Lét kökurnar eiga sig en fékk mér smá smakk af brauðrétti, náði ekki að borða hádegismat áður en við fórum svo ég átti alveg inni fyrir honum:D

Ég er bara hress og kát og glöð með lífið...er alltaf að fá að heyra að það sé svo bjart yfir mér. Bara fyndið að um daginn þá hitti ég systur mömmu sem ég hef ekki séð síðan í ágúst. Hún var bara ekki að komast yfir þetta, hvað ég væri búin að grennast. Stamaði og allt:D....."þúþúþúþúþú ert baaaara eeeinns og..........fegurðardrottning......þþþþaaaaaaað baaaara geislar af þér". Hahahahahha fyndnasta sem ég hef heyrt á ævinni, ég og fegurðardrottning eigum ekkert sameiginlegt og ég vil síst af öllu láta líkja mér við eina slíka. Held samt að meiningin á bakvið þetta hafi verið að það sé mun bjartara yfir mér nú en áður.

Skrítnar skrúfur í þessari fjölskyldu minni:D

Ætla vera duglegri að blogga...veriðiði duglegar stelpur áfram:)
later....
Hehe, það geislar sko alveg af þér í gegnum skrif þín líka. :) Get vel ímyndað mér að það sé bjart yfir þér! Svo ertu svo dugleg að halda þér í þinni þyngd! Algjör hetja!

Gangi þér áfram svona vel skvísa!
#1
23. apríl 2008 klukkan 09:13
Hey, og líffræði er sko mikið auðveldari en stærðfræði. Og hjúkrunarkonur þurfa auðvitað að kunna alveg svakalega mikið af efnafræði. Engin spurning.
Gangi þér vel í skólanum. Gamall sveppur.
#2
03. maí 2008 klukkan 17:48
Haha sjáum til hvernig þetta gengur, tek 3 eininga líffræðiáfanga á 9 dögum:S Það verður nú meiri páfagaukalærdómurinn:D
#3
06. maí 2008 klukkan 12:05

Skrifa athugasemd