Prófíll

  • Nafn: Kristín
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Heimavinnandi
  • Hjúskaparstaða: Sambúð
  • Um mig: Ég heiti Kristín og er tveggja barna móðir:) Er í viðhaldi eins og er eftir 1 árs átak, er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera við þessa síðu en vonandi mun það koma í ljós fljótlega:)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Hellú:)

16. mars 2008 klukkan 23:21
Allt ágætt að frétta héðan, reyndar allt farið í rugl með þennan skóla minn en ég er orðin svo þreytt á því að ræða það að ég ætla sleppa því hér.
Flest við það sama nema fékk smá fyrirlestur í seinustu vigtun. Ekkert alvarlegt, bara að ég þyrfti að borða meira. Léttist um 1,6 kg í viðbót (á hva 3 vikum held ég) og þær voru ekkert allt of hrifnar af því. Fannst samt ótrúlegt að ég hefði lést því ég hef verið að passa mig svo að borða meira og sætta mig við það.
T.d. búin að háma í mig pizzu á föstudögum og þá erum við að tala um þangað til ég næ varla andanumUllandi. Svo er ég búin að vera í extranu nánast á hverjum degi, borðaði t.d. köku með ís í morgunmat í dag, í morgunmat í gær borðaði ég banana/kakó-pönnukökur.

Jæja þýðir ekkert að pæla í því, held bara áfram á sömu braut og fylgist með vigtinni. Skil reyndar ekki alveg hvað fólk er upptekið af þessari kjörþyngd, bmi stuðullinn fyrir mína hæð þarf ekki endilega að passa við mína beinabyggingu t.d.
En hvað um það, ég ætla bara fylgjast með vigtinni á hverjum morgni núna, bæði það að hún fari ekki upp og ekki niður heldur. Hlýt að læra inn á það með tímanum hvað ég má borða, hvað ég þarf að borða o.s.fr.

Slaka aðeins á í stressinu við að þyngjast aftur, efast stórlega um að ég geti þyngst um 50 kg á einum degiHlæjandi.

Ætla taka smá bloggrúnt...heyrumst:)
Hæ skvísa, þú verður nú samt að passa þig og léttast ekki mikið meira! Þú ert alveg tágrönn as it is! En það tekur náttúrulega einhvern tíma að finna jafnvægið, hversu mikið þú mátt borða án þess að léttast7þyngjast. :)

Gangi þér vel. :)
#1
17. mars 2008 klukkan 12:25
eins og þú segir þá geturðu ekki þyngst um 50kg á einum degi, um að gera að fylgjast vel með og þá geturðu gripið inn í annað hvort með að bæta við kaloríum eða halda þig við minna.

Gangi þér vel
#2
19. mars 2008 klukkan 14:47
SÆL OG BLESSUÐ:)...... TAKK FYRIR AÐ HVITTA Í GESTABÓKINA MÍNA:)...hehe..ég var að sjá það núna ....kíki svo sjaldan þangað:)...... já passaðu þig vel...kílóin eru ótrúlega fljót að læðaðast að manni aftur;)....gangi þér vel...kv Hugrún gorkúla:).........
#3
22. mars 2008 klukkan 14:31

Skrifa athugasemd