Prófíll

  • Nafn: Kristín
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Heimavinnandi
  • Hjúskaparstaða: Sambúð
  • Um mig: Ég heiti Kristín og er tveggja barna móðir:) Er í viðhaldi eins og er eftir 1 árs átak, er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera við þessa síðu en vonandi mun það koma í ljós fljótlega:)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Dugleg eins og venjulega...

04. mars 2008 klukkan 03:03
að fara snemma að sofaUllandi. Skil ekki hvað er að mér stundum, get vakað endalaust. Ætli ég þurfi ekki um 5 tíma svefn eða svo, kannski einu sinni í viku aðeins lengur en hvað um það.
Það er svona þokkalegt af mér að frétta, er hress en pirruð út í skólann. Gengur vel og allt það en þetta er bara ekki að fara samkvæmt áætlun. Planið var að fá námslán og vera heima áfram með litluna, fékk grænt ljós á námslánin frá lín strax í upphafi en nú eru þeir að bakka með það. Ég sé ekki fram á að geta stundað mörg hundruð þúsund króna nám án námslána.
Nú er ég búin með einn áfanga og byrjuð á næsta en ég er bara ekki að nenna standa í þessu rugli lengur. Er að hugsa um að fá mér vinnu, senda bolluna til dagmömmu (ef hana er að fá) og setja skólann á hold fram á haust en þá á ég möguleika á að komast inn í dagsskólann.
Sé til hvað morgundagurinn ber í skauti sér, ætla ekki að taka neina ákvörðun í fljótfærni eins og ég gerði þegar ég sótti um skólann. Held að þetta hafi verið stór mistök hjá mér að bíða ekki bara fram á haustið.
Svo er auðvita spurning hvort það borgi sig fyrir okkur að ég fari að vinna, það kostar mun meira bensín og ekki er það gefins, dagmömmu o.s.fr. Fyrir utan tímann með stelpunum, eldri þyrfti að vera lengur á leikskólanum og litlan þyrfti að vera að minnsta kosti 8 tímana til að þetta kæmi út í plús.
Men þetta er flókið lífHlæjandi. Þoli ekki svona lausa enda, vil hafa allt niður nelgt og í föstum skorðum...svona er það að búa á Keflavíkurflugvelli, enga vinnu að fá í Reykjanesbæ, allavega ekki fyrir ómenntað fólk eins og mig og eiga 2 börn sem þarf að koma fyrir einhversstaðar. Hvenær geta börn farið að vera ein heimaHlæjandi.

Matarræðið gengur þokkalega, reyni að borða extra og svona. Gerði mér muffins um helgina og borðaði líka pizzu á föstudagskvöldinu en vá mér líður bara eins og ég sé að gera eitthvað algjörlega bannað og því fylgir samviskubitÓákveðinn.
Ég er greinilega alveg rosalega hrædd við að þyngjast aftur...það er eins gott að það gerist ekki!!!!

Elska samt bakað epli með kanil, namminamm hvað það er gott:) Fékk mér svoleiðis áðan með ís með...úff hreinasta sælgæti.

Fór til tannlæknis í dag, verið að rótafylla eina tönn...men hvað ég á rosalega erfitt með að liggja kyrr í þessum stól í 3 tíma í einu. Ég er öll á iði og alltaf verið að segja mér að slappa af, ég bara get það ekki. Geri allskonar æfingar með fótunum bara til að gera eitthvað:D
Eftir tannlækninn þrammaði ég Smáralindina í leit að skóm fyrir makann minn:D sem er alltaf að kvarta undan skó- og fataleysi. Grunar að það sé smá öfundsýki í gangi því ég er aðeins búin að vera missa mig í fatakaupunum:) En allavega keypti á hann rosalega flotta Sketchers skó og nýja rakvél, mikið var hann glaður:D
Svo gaman að gera eitthvað svona fyrir hann...en bara svo við höfum mig á hreinu þá keypti ég að sjálfsögðu skó á mig í leiðinni...ég er svo góðSkömmustulegur.
Reyndar bara ódýra úr Hagkaup en samt þokkalega flottir, svört rúskins stígvél...mig vantaði rosalega svört stígvél:þ

Jæja læt þetta duga í bili, ekki svo langt í að bollan vakni.

P.s. setti inn nýjar myndir
Heyrumst:)
Shitt! Þú ert orðinn eins og einhver tannstöngull hreinlega! Þvílíka gellan! :D Hvaða fatastærð ertu að taka núna og hvaða fatastærð varstu í? (ef þú vilt deila) Var aldrei neitt húðvesen hjá þér, gekk hún öll jafnt saman?

Annars veit ég ekki hvað þú getur gert í þessu samviskubiti sem kemur yfir þig, hræðslan við að bæta á sig aftur hlýtur að vera sterk, en þú verður bara að vera sterkari. Finna milliveginn, ná að njóta rétt án samviskubits. Ég er fullviss um að þú náir því, ert svo rosalega dugleg.

Gaman að fylgjast með þér. :)
#1
04. mars 2008 klukkan 16:08
Engin smá skvísa sem þú ert :)

Með samviskubitið, gætiruð ekki reynt að setja smá grind utan um það sem þú mátt leyfa þér aukalega og plata þá kannski hausinn aðeins að þú sért enn þá að fylgja reglunum (sem þú er nottla samt að gera).

Gangi þér vel og ég segi eins og Dídí, gaman að fylgjast með þér, ég ætla nefnilega að vera í þessum sporum eftir tæpt ár :P
#2
04. mars 2008 klukkan 21:41
Já Dídí mér brá þegar ég sá þessar myndir, ég sé mig ekki svona þegar ég horfi í spegilinn. Áttaði mig eftir þessar myndir að nú væri komið gott, er eiginlega fegin að þessar myndir voru teknar því ég væri alveg vís til að halda áfram...sem væri ekki fallegt. Grunar að heilinn sé ekki alveg að fylgja jafn hratt á eftir.
Það er rosalega misjafnt hvaða stærðir ég er að taka, er enn að læra á þetta aftur:) Ég á diesel í 28 sem mæsttu vera 1-2 númerum minni, svo á ég venjulegar gallabuxur bæði í 26 og 27 sem eru svona þægilega lausar. Ætli ég sé ekki í svona 25,26 og 27, fer eftir sniðinu og svona.
Ég er aðeins farin að sættast á að leyfa mér meira, ætla svona 1-2 í viku að búa mér til eitthvað kaffimeðlæti án þess að telja það til extra, á föstudögum ætla ég að fá mér pizzu án þess að vigta og sleppa einhverju og á laugardögum ætla ég líka að fá mér eitthvað DDV vænt án þess að telja það til extra.
Það er ágætis byrjun...ætla ekki í sykurinn nærri því strax:)
Takk stelpur, þið eruð æði:) Alltaf gott að fá pepp...við verðum allar súper-gellur innan skamms;)
#3
05. mars 2008 klukkan 17:37

Skrifa athugasemd