Prófíll

  • Nafn: Kristín
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Heimavinnandi
  • Hjúskaparstaða: Sambúð
  • Um mig: Ég heiti Kristín og er tveggja barna móðir:) Er í viðhaldi eins og er eftir 1 árs átak, er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera við þessa síðu en vonandi mun það koma í ljós fljótlega:)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Allt eins og það á að vera...

21. október 2008 klukkan 15:08
Laaaaaangt síðan síðast, hef lítinn tíma fyrir blogg:s

Bara rétt að láta vita af mér, allt eins og það á að vera og litlar sem engar breytingar. Er í sömu þyngd og þegar ég útskrifaðist í janúar og er bara ánægð með það. Hef lítið sem ekkert rokkað, niður um 2 kg og upp um 2 kg.
Góða við danska að það er alltaf hægt að grípa í taumana áður en það verður of seint:)

Farin að læra
Heyrumst...

Humarveisla namminamm:)

25. júní 2008 klukkan 12:10

Styttist mjög í að skólinn byrji, 6 dagar. Ég ætla svo að njóta þess að vera í fríi þessa 6 daga, ekki gera neitt nema eitthvað skemmtilegt með "skaranum" mínumBrosandi.
Við fórum bara tvö út að borða á laugardaginn, það var ekkert smá gaman. Fórum á Tabas-barinn og vá hvað ég get mælt með honum. Ég fékk mér humarveislu og namminammHlæjandi það var ekkert smá gott. Ég náði varla andanum fyrir seddu eftir matinn en ég varð að sjálfsögðu að klára...þetta var svo hrikalega gottBrosandi. Eftir matinn kíktum við svo í smá göngutúr um bæinn sem var samt bara mjög stuttur því við vorum ekki alveg í dressinu til að labba í.
Mig langaði svo í kaffi svo við skelltum okkur inn á næsta kaffihús. Það var frekar fyndin reynsla, stelpurnar sem voru að vinna þar voru nú ekki alveg að gera sig greyin. En allavega eftir að hafa beðið eftir þeim í 20 mín pöntuðum við okkur kaffi, nei það var ekki hægt að fá kaffi því klukkan var orðin svo margt?!?! Ég spurði af hverju væri ekki hægt að fá kaffi "svona seint" þá fengum við þau svör að það væri alltaf slökkt á kaffivélinni klukkan 22:00 og eftir það væri ekki til kaffi.
Ég er nú ekki alveg að skilja hverju það breytir fyrir þau að hafa kveikt á kaffivélinni og svona af því að ég hef sjálf unnið við þjónustustörf frá því að ég fór út á vinnumarkaðinn og er með "próf" í verslunarfagnámi þá fá þær greyin ekki háa einkunn hjá mér. Sjálf hefði ég nú bara tekið niður pöntunina og kveikt á kaffivélinni en það er nú bara égUllandi. Þar sem að við hittum nokkra vini sem voru að sötra bjór þá missti staðurinn af ágætis viðskiptum því við fórum öll.
Við kærustuparið enduðum síðan í billjard, það var ekkert smá gaman. Við vorum ekki alveg að fitta inn í umhverfið í sparifötunum okkar en það gerði ekkert til. Ég vann einn leik en Kjartan alla hina, ég var samt mjög góðUllandi.

Fyrir utan að hafa fengið mér humarveislu og Tabas-barnum þá er ég búin að vera mjög DDV-væn, tók meira að segja vigtina mína með mér í sumarbústaðaferð sem við fórum íHlæjandi. Vá hvað ég elska hrákökuna góðu, það er ekkert smá gott að blanda saman svona möndlum og sveskjum og frysta þetta. Manni líður eins og maður sé að svindla feitast þegar maður gæðir sér á henni en það góða við hana er að maður er ekki að svinlda neitt. Annars gerði ég mér rosalega góða "pizzu" í hádeginu í gær. Notaði bara svona tortilla brauð, skellti á það 11% rjómaosti, hökkuðum tómötum yfir, skar niður hvítlauk og setti og smá papriku og svo mozzarellaost yfir. Þetta var ekkert smá gott. Hafði ekki tíma til að gera mér alvöru pizzusósu svo ég notaði bara tómatana og skellti hvítlauk yfir, var næstum því jafn gott.
Man ekki hvort ég var búin að segja frá gulrótakökunni minni, notaði uppskrift sem ég fann á spjallinu en breytti henni aðeins svo hún er nánast eins og venjuleg gulrótarkaka fyrir utan það að hún er 100% hádegismatur.
Uppskriftin hljómar svona:
150 gr gulrætur
40 gr undanrennuduft
30 gr hveiti
5 gr brúnkökukrydd (kanill og kardimommur (ég nota reyndar bara múskat eða eitthvað álíka))
5 gr lyftiduft
1 tsk vanillukorn eða dropar
sætuefni
1 egg (sem ég bætti út í til að kakan yrði hádegismatur)
Krem:
75 gr 11% rjómaostur
sítrónusafi eftir smekk
sætuefni eftir smekk

Það var sem sagt ekki egg í uppskriftinni áður og kremið var smjör og eitthvað. Mér fannst hún aldrei sérstaklega góð og eins bakaðist kakan eitthvað skringilega. En með egginu þá bakast hún bara eins og venjuleg kaka og eins er rjómaostakremið miklu betra heldur en smjöriðGlottandi.

Jæja held að þetta sé nóg í bili
Heyrumst...

17.júní gaman:)

18. júní 2008 klukkan 15:45
Vá hvað þetta var frábær dagur í gær, ekkert smá gamanHlæjandi. Okkur leist ekkert sérstaklega á dagsskrána hérna í Reykjanesbænum svo við tókum bara þá ákvörðun að skella okkur í geðveikina í miðbæ Reykjavíkur. Geðveikin var reyndar ekkert svo mikil, allavega urðum við ekkert svo vör við hanaBrosandi.
Stóran þurfti að pissa svo við komum við heima hjá Stebba og Sibbu og plötuðum þau með okkur í bæinn með strákana. Það var bara rosa gaman hjá okkur. Í staðin fyrir að eyða tímanum í biðraðir fundum við okkur bara leikskóla og fengum afnot af leikvellinum þar. Krakkarnir skemmtu sér ekkert smá vel í sólinni og öllum leiktækjunum. Litlan orðin ekkert smá flink í rennibrautinni og sandkassanum enda ekki seinna vænna þar sem hún er að fara byrja á leikskólaHlæjandi. Eftir mikið stúss í rennibrautum, bílum og vegasalti röltum við um bæinn í veðurblíðunni. Enduðum á Arnarhóli þar sem voru skemmtiatriði og tilltum okkur í brekkunni ásamt mörg þúsund Íslendingum. Skemmtiatriðin voru fín og skemmtu krakkarnir sér rosalega vel, foreldrarnir ekki síðurHlæjandi.

Dagurinn var samt alls ekki DDV vænn enda erfitt þegar maður er bara á ferðinni og biðraðir allstaðar...hefði svo sem getað undirbúið mig betur en ég bara nennti því ekkiUllandi. Ég borðaði sem sagt bara morgunmat en bætti það upp með því að háma í mig pizzu með famelíunni. Eftir skemmtilegan dag í miðbænum var sem sagt pöntuð pizza og brunað með hana heim til Stebbz and Sibbz þar sem allir hámuðu í sig pizzu.
Stelpurnar voru alveg búnar á því eftir daginn og voru því fegnar þegar heim var komið, glaðar að sjá rúmin sín (sem er ekki algengtHlæjandi)

12 dagar í að skólinn byrji aftur og stóran fari í sumarfrí með pabbanum. Verður fjör hjá honum að vera heima með stelpurnar sínar, veit að honum hlakkar mikið til. Mig hins vegar kvíður frekar fyrir geðveikinni sem verður þessar 3 vikur sem skólinn er. 10 einingar á 3 vikum og þar af 5 í stærðfræðinni góðuÓákveðinn. Sjáum til hvernig það fer, eins gott að mér gangi vel svona svo maður fái námslánin sín.
Litlan byrjar síðan á leikskóla í ágúst og verður það mikið partý fyrir hana, komið nóg af því að hanga heima með mömmu sinni (mamman að reyna hugga sjálfa sig). Spurning hvað maður tekur sér fyrir hendur þá, líklega verð ég bara áfram heima. 30 einingar sem bíða mín í haust í fjarnámi og það er alveg spurning hvort maður nái að vinna eitthvað með á milli þess sem maður lærir, sækir stóruna í skólann og litluna í leikskólann. Ætli það sé hægt að fá vinnu frá 9-13 eða eitthvað, tekur því varla. Kannski að ég fái mér bara vinnu aðra hvora helgi eða eitthvað, lítið spennt samt fyrir því að námslánin skerðist mikið.

Jæja næstu vikur verða 100% DDV vænar, finn það að líkaminn er ekki alveg tilbúinn í viðhaldi strax. Þyngist um leið og ég borða meira en léttist ef ég bæti ekki við mig. Veit ekki alveg hvað ég á að gera því ég má svo sem ekkert við því að léttast meira.
Vandlifað í þessum heimi....

HeyrumstBrosandi

Magnaður bloggari!

13. júní 2008 klukkan 12:33
setti inn nýjar og gamla mynd svona í tilefni af því að ég er svo magnaður bloggari. Blogga allt of mikið held égHlæjandi.
Setti inn eina gamla mynd frá apríl 2007, nokkrum dögum seinna byrjaði ég á danska. Svo er ein mynd frá því í maí og önnur frá júní. Ætlaði reyndar aldrei að setja inn "fyrir" mynd af mér en ég held að það sé kominn tími til að sætta sig við það að ég var einu sinni feit. Þessi afneitun gerir mér líklega ekkert gottUllandi.
Annars er allt við það sama, hef reyndar verið að taka eftir því að ég má varla leyfa mér neitt sem er ekki innan ramma danska. Ef ég borða pizzu án þess að vigta og sleppa ávöxtum og brauði þá þyngist ég og það ekkert smá. Hef leyft mér nokkrum sinnum að fá mér popp, það er svona það svakalegasta sem ég hef gert en þá þýðir það líka bara upp um að minnsta kosti kíló.
Mér finnst þetta rosalega spes eitthvað! Fór á djammið seinasta laugardag og var búin að ákveða að sunnudagurinn yrði ekki danskur. Bakaði pizzu með systur minni og svo var poppað og drukkið pepsi max. Ok þetta hljómar nú ekkert svakalegt en þetta kostaði 1,5 kg sem sitja ennþá föst.
1,5 kg fyrir smá fyllerí, 1/2 pizzu ca og popp (reyndar fullt af poppi en samt). Ég er ekki alveg að skilja þetta...þarf ég sem sagt fyrir hvert sukk að taka 1-2 stífar vikur á danska ef ég vil halda mig alltaf í sömu þyngd?
Miða við hvernig mér gekk að léttast á danska þá virðist brennslan vera fín þrátt fyrir skjaldkirtilsleysi en hún virðist greinilega bara vera fín ef ég held mig 100% við prógrammið.
Ég þarf greinilega að fylgjast með vigtinni það sem eftir er...nema það sé rétt sem ég var að lesa að það taki líkamann  4-6 ár að "læra" vera grannur eftir offituástand. Vonandi er eitthvað til í þessu.

Jæja heyrumst:)

Djamm, Gunnlaugssaga ormstungu og líffræði;)

06. maí 2008 klukkan 12:28
Allt fínt að frétta af mér, það skemmtilegasta sem ég hef frá að segja er að ég fór á djammið á laugardagskvöldið. Það var nú bara mjög fínt, varð reyndar fyrir þvílíkum vonbrigðum með Hressó og endaði á GlaumbarUllandi. Dj-inn á Hressó gleymdi líklega sínu plötusafni heima hjá sér og tók plötusafn afa síns með sér. Þvílíkur tónlistarsmekkur, segi ekki annað.
Djammið heppnaðist samt fínt og var svaka fjör, gistum svo heima hjá maogpa sem voru erlendis því að leigubíll heim til mín kostar víst ca 15.000 kr...peningur sem ég á ekki til að eyða í leigubíl. Spurning hvort maður hafi efni á svona leigubílaferðum þegar maður er orðinn hjúkka?!?!?Hlæjandi
Núna er ég bara að vinna í lokaritgerðinni minni í íslensku sem á víst að vera rannsóknarritgerð. Gunnlaugur ormstunga varð fyrir valinu en mikið rosalega á ég erfitt með að "skilja" rannsóknarritgerð. Svo rosalega langt síðan ég hef gert ritgerð og þær ritgerðir sem ég hef gert hafa verið í raun bara endursögn. Sjáum til hvað verður. Fæ að skila inn uppkastinu sem kennarinn fer yfir, bendir á það sem betur má fara og svo lagar maður það...stefni á 9Brosandi.

Svo er það líffræðin sem hefst líklega núna 13 maí og verður í 9 heila daga. Hvernig ég á að fara að því að ná öllu þessu efni á svona stuttum tíma veit ég ekki en ég hlýt bara að finna út úr því.

Af vigtinni er fátt að frétta, stend nánast bara í stað. Rokka aðeins niður en tekur stuttan tíma að ná mér aftur upp í mína þyngd, yfirleitt ekki nema einn dag.
Hef verið að leyfa mér ágætlega margt. Borða alltaf pizzu á föstudegi eða laugardegi og pæli þá ekkert í því að vigta ofan í mig. Eins borða ég mikið af hnetum, ddv ísinn er vinsæll og svo hef ég verið að fá mér popp um helgar og svo auðvita áfengi alveg 3 sinnum síðan ég skrifaði seinastHlæjandi. Sykur og sælgæti læt ég alveg vera. Fór samt í afmæli um daginn og sleppti því bara borða hádegismatinn minn og fékk mér svo bara brauðrétt í afmælinu. Fullt af osti og svona gummsi en rosa gott, fannst líka voðalega spes eitthvað að vera borða í afmæli...langt síðan það hefur gerstHlæjandi.
Uppgvötaði rosalega fínan hádegismat um daginn, tók uppskrift að köku úr Vikunni og breytti henni aðeins. "Mín" uppskrift hljómar svona:
30 gr hveiti
30 gr undanrennuduft
3-4 tsk kakó
1 tsk lyftiduft
2 egg
1/2-1 bananai (má sleppa)
fljótandi sætuefni
Fylling:
DDV-ís

Viku uppskriftin er helmingi minni, 15 gr hveiti, 1 egg o.s.fr. en mér finnst þetta bara svo tilvalinn hádegismatur með því að tvöfalda hana. Þegar ég geri mér eitthvað svona úr hveiti þá sleppi ég brauðinu. Ég er reyndar hætt að telja extrað svo ég gæti alveg fengið mér brauð með en mér finnst það bara fara rosalega illa í mig að borða svona mikið af einföldum kolvetnum. Of mikið brauðát fer virkilega illa í mig og eins finn ég aldrei fyrir nartþörf nema þegar ég borða of mikið af brauði...sem sagt baka mér eitthvað OG borða brauðið.
En allavega þá er þetta rosalega góð kaka og alveg geggjað að hafa ísinn á milli. Best finnst mér að hafa tvískipta ísinn (súkkulaði og vanillu).

Jæja látum þetta gott heita í bili....heyrumst:)

Ég er snillingur:)

22. apríl 2008 klukkan 11:24
Hóhóhó:D
Mér tókst með ótrúlegum hætti að skilja stærðfræði, margliðudeiling...bring it on;) Ég lá yfir þessu dag og nótt (smá ýkjur) fyrir prófið því ég ætlaði að ná. Ég náði ekki bara heldur fékk ég 9,2...snillingurinn sem ég er. Þá er ég búin með 5 einingar í stærðfræði á hva 1 1/2 mánuði, ekki slæmur árangur það.
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að maður verður gáfaðri með aldrinum, hæðsta einkunn sem ég hef fengið á lokaprófið í stærðfræði hingað til er 6. Eina útskýringin sem ég hef er að gáfur aukast með hækkandi aldriUllandi.
Nú er það íslenskan og mikið er hún leiðinleg, þá vil ég heldur reikna...aldrei bjóst ef ég við því að eiga eftir að segja eitthvað þessu líkt. Er sem sagt í Orminum langa þessa dagana að lesa Eddukvæðin. Atlakviða, hverjum datt þetta rugl í hug? Að lesa 140 bls af kvæðum á einni viku er ekki svo gaman, ég var orðin rangeygð hérna um helgina og alveg við það að fara gubba. Svo kom að því að leysa verkefni úr öllum kviðunum, jújú ég var búin að lesa allar 140 bls en vissi ekki svarið við einni einustu spurningu (nema jú það sem ég vissi fyrir). Hver er þá tilgangurinn í að lesa kvæði sem maður skilur hvorki upp né niður í. Þrymskviðan er reyndar nokkuð einföld og augljós en hún er víst með yngri kvæðunum. Annað er bara tómt rugl:)

Svo er það auðvita "Gott mál", ég hef nú haldið því fram hingað til að ég sé frekar fær í íslensku og nokkuð vel að máli komin. Ég hef þó komist að öðru undanfarna daga þegar ég hef verið að leysa verkefnin í "Góðu máli", ég hef vaðið í villu fram að þessu. Það er t.d. ekki rétt að segja *villu vegar* heldur segir maður *vill vegar*. Hún fór *vill* vegar og þær fóru *villar* vegar.
Meira ruglið, ég greinilega kann ekki gott mál.
Eftir íslenskuna er það svo líffræðiÓákveðinn. Snillingurinn ég skráði mig á raunvísindabraut, hvað ég var að pæla er ég ekki alveg viss á. Jú reyndar, ég var svo yfir mig stolt af því að hafa lært stærðfræði, margliðudeilingu og allt þetta að ég var alveg með það á hreinu að fyrst ég gat lært það þá gæti ég alveg lært að vera ljósmóðir. Tekið hjúkkuna með trompi og ljósuna með annarri, hvort ég get það á eftir að koma í ljós.
Ég og vinkona mín sem er með mér í bekk vorum svo uppfullar af sjálfum okkur að við skráðum okkur bara á raunvísindabraut og dreymdi dagdrauma um leið...við að taka á móti fullt af börnum.

Það er eins gott að ég get eitthvað í allri þessari líffræði og efnafræði, það kostar nefnilega hellings peninga að ná því ekkiUllandi.
Eftir að líffræðinni líkur er annað hvort pása fram í ágúst eða pása í smá tíma og svo sumarskóli, 10 einingar á 3 vikum. 5 í stærðfræði og 5 í ensku. Fer allt eftir því hvort ég fái námslán eða ekki hvort ég taki sumarskólann...glatað að eiga ekki nokkra *hundrað þúsund kalla* undir koddanum.

Annarrs er bara fínt að frétta af vigtinni, held mér bara alltaf í sömu þyngd. Hef farið aðeins niður, þó ekkert alvarlegt en er þá bara þeim mun duglegri að borða daginn eftir. Fór í afmæli á sunnudaginn og borðaði í afmæli í fyrsta skipti síðan ég byrjaði á danska. Lét kökurnar eiga sig en fékk mér smá smakk af brauðrétti, náði ekki að borða hádegismat áður en við fórum svo ég átti alveg inni fyrir honum:D

Ég er bara hress og kát og glöð með lífið...er alltaf að fá að heyra að það sé svo bjart yfir mér. Bara fyndið að um daginn þá hitti ég systur mömmu sem ég hef ekki séð síðan í ágúst. Hún var bara ekki að komast yfir þetta, hvað ég væri búin að grennast. Stamaði og allt:D....."þúþúþúþúþú ert baaaara eeeinns og..........fegurðardrottning......þþþþaaaaaaað baaaara geislar af þér". Hahahahahha fyndnasta sem ég hef heyrt á ævinni, ég og fegurðardrottning eigum ekkert sameiginlegt og ég vil síst af öllu láta líkja mér við eina slíka. Held samt að meiningin á bakvið þetta hafi verið að það sé mun bjartara yfir mér nú en áður.

Skrítnar skrúfur í þessari fjölskyldu minni:D

Ætla vera duglegri að blogga...veriðiði duglegar stelpur áfram:)
later....

Hver fann upp stærðfræðina?!?!

25. mars 2008 klukkan 16:25

Djö þoli ég ekki þennan fjanda, get setið yfir sama dæminu í marga klukkutíma og reiknað það fram og til baka en ég er engu nær. Fjarnám er kannski ekki það sniðugasta fyrir stærðfræði-vanvita eins og migUllandi. Annarrs er kærastinn algjör stærðfræðisnillingur og ég hef fengið fullt af hjálp frá honum en því miður fyrir mig er hann oooooof upptekin þessa dagana.

Nóg um stærðfræði í bili enda komin með meira en nóg.

Páskarnir voru fínir, var páskamatur hérna á laugardeginum og fékk ég kalkún með fyllingu ásamt meðlæti. Ég borðaði af öllu nema sykruðu kartöflunum, passaði mig bara á því að vera ekki að moka í mig og laumaðist í grænmeti eftir matinn. Fékk mér ekkert páskaegg enda er mér ekki treystandi til þess, ég hefði annað hvort fengið rosalega í magann eða endað á að borða allt of mörg stykki.
Páskarnir voru sem sagt ddv-vænir nema laugardagurinn og reyndar ekki föstudagurinn heldur því þá fór ég á fyllerí....og við erum að tala um FYLLERÍHlæjandi.

Ég var allt of drukkin, gerði reyndar enga skandala eða svoleiðis en miða við heilsuna daginn eftir þá var þetta ekkert allt of sniðugt hjá mér. Ég sem verð mjöööög sjaldan þunn var bara svolítið mikið þunn á laugardaginn. Vaknaði meira að segja ennþá drukkin í hádeginu á laugardeginum og komst að því seinna um daginn að ég hefði verið komin heim til mín einhverntímann eftir 7 um morguninn. Meiri róninnHlæjandi.

Búin að standa í stað á vigtinni og búin að vera dugleg að bæta við mig. Ég reyndar fylgi venjulega prógramminu svona flesta daga, bæti stundum við hnetum eða einhverju en svo er ég að leyfa mér pizzu í kvöldmatinn og svona inn á milli. Átti afmæli á föstudaginn langa og þá var pöntuð pizza fyrir afmælisbarnið...en ekki hvað. Fékk mér eina með svörtum ólífum...namminamm:)
Það sem ég get borðað af þessum fjanda, át næstum heila pizzu einSkömmustulegur Svo bætti ég auðvita um betur og drakk ansi mikið af áfengi um kvöldið svo það ætti að halda mér á mottunni hvað varðar vigtina i einhvern tíma:)

Áttaði mig samt á því um daginn að vigtin er greinilega eilíf barátta í báðar áttir. Vigtaði mig einn morguninn í seinustu viku, greinilega ekki búin að vera borða nóg og var 52,eitthvað kg. Leist ekki á þá tölu svo ég borðaði ansi vel þann daginn. Borðaði hnetur, ólífur,eplaköku og ís aukalega og var þá strax komin í "mína" tölu daginn eftir:)
Held að ég haldi mig við það að vigta mig daglega á meðan ég er að ná tökum á þessu. Er samt orðin þokkalega klár í þessu og hausinn að komast í lag með að borða meira, verst hvað það er bara lítið pláss fyrir "auka" matinn...það kemur:)

Jæja nóg bull í bili
Heyrumst:)

Hellú:)

16. mars 2008 klukkan 23:21
Allt ágætt að frétta héðan, reyndar allt farið í rugl með þennan skóla minn en ég er orðin svo þreytt á því að ræða það að ég ætla sleppa því hér.
Flest við það sama nema fékk smá fyrirlestur í seinustu vigtun. Ekkert alvarlegt, bara að ég þyrfti að borða meira. Léttist um 1,6 kg í viðbót (á hva 3 vikum held ég) og þær voru ekkert allt of hrifnar af því. Fannst samt ótrúlegt að ég hefði lést því ég hef verið að passa mig svo að borða meira og sætta mig við það.
T.d. búin að háma í mig pizzu á föstudögum og þá erum við að tala um þangað til ég næ varla andanumUllandi. Svo er ég búin að vera í extranu nánast á hverjum degi, borðaði t.d. köku með ís í morgunmat í dag, í morgunmat í gær borðaði ég banana/kakó-pönnukökur.

Jæja þýðir ekkert að pæla í því, held bara áfram á sömu braut og fylgist með vigtinni. Skil reyndar ekki alveg hvað fólk er upptekið af þessari kjörþyngd, bmi stuðullinn fyrir mína hæð þarf ekki endilega að passa við mína beinabyggingu t.d.
En hvað um það, ég ætla bara fylgjast með vigtinni á hverjum morgni núna, bæði það að hún fari ekki upp og ekki niður heldur. Hlýt að læra inn á það með tímanum hvað ég má borða, hvað ég þarf að borða o.s.fr.

Slaka aðeins á í stressinu við að þyngjast aftur, efast stórlega um að ég geti þyngst um 50 kg á einum degiHlæjandi.

Ætla taka smá bloggrúnt...heyrumst:)

Dugleg eins og venjulega...

04. mars 2008 klukkan 03:03
að fara snemma að sofaUllandi. Skil ekki hvað er að mér stundum, get vakað endalaust. Ætli ég þurfi ekki um 5 tíma svefn eða svo, kannski einu sinni í viku aðeins lengur en hvað um það.
Það er svona þokkalegt af mér að frétta, er hress en pirruð út í skólann. Gengur vel og allt það en þetta er bara ekki að fara samkvæmt áætlun. Planið var að fá námslán og vera heima áfram með litluna, fékk grænt ljós á námslánin frá lín strax í upphafi en nú eru þeir að bakka með það. Ég sé ekki fram á að geta stundað mörg hundruð þúsund króna nám án námslána.
Nú er ég búin með einn áfanga og byrjuð á næsta en ég er bara ekki að nenna standa í þessu rugli lengur. Er að hugsa um að fá mér vinnu, senda bolluna til dagmömmu (ef hana er að fá) og setja skólann á hold fram á haust en þá á ég möguleika á að komast inn í dagsskólann.
Sé til hvað morgundagurinn ber í skauti sér, ætla ekki að taka neina ákvörðun í fljótfærni eins og ég gerði þegar ég sótti um skólann. Held að þetta hafi verið stór mistök hjá mér að bíða ekki bara fram á haustið.
Svo er auðvita spurning hvort það borgi sig fyrir okkur að ég fari að vinna, það kostar mun meira bensín og ekki er það gefins, dagmömmu o.s.fr. Fyrir utan tímann með stelpunum, eldri þyrfti að vera lengur á leikskólanum og litlan þyrfti að vera að minnsta kosti 8 tímana til að þetta kæmi út í plús.
Men þetta er flókið lífHlæjandi. Þoli ekki svona lausa enda, vil hafa allt niður nelgt og í föstum skorðum...svona er það að búa á Keflavíkurflugvelli, enga vinnu að fá í Reykjanesbæ, allavega ekki fyrir ómenntað fólk eins og mig og eiga 2 börn sem þarf að koma fyrir einhversstaðar. Hvenær geta börn farið að vera ein heimaHlæjandi.

Matarræðið gengur þokkalega, reyni að borða extra og svona. Gerði mér muffins um helgina og borðaði líka pizzu á föstudagskvöldinu en vá mér líður bara eins og ég sé að gera eitthvað algjörlega bannað og því fylgir samviskubitÓákveðinn.
Ég er greinilega alveg rosalega hrædd við að þyngjast aftur...það er eins gott að það gerist ekki!!!!

Elska samt bakað epli með kanil, namminamm hvað það er gott:) Fékk mér svoleiðis áðan með ís með...úff hreinasta sælgæti.

Fór til tannlæknis í dag, verið að rótafylla eina tönn...men hvað ég á rosalega erfitt með að liggja kyrr í þessum stól í 3 tíma í einu. Ég er öll á iði og alltaf verið að segja mér að slappa af, ég bara get það ekki. Geri allskonar æfingar með fótunum bara til að gera eitthvað:D
Eftir tannlækninn þrammaði ég Smáralindina í leit að skóm fyrir makann minn:D sem er alltaf að kvarta undan skó- og fataleysi. Grunar að það sé smá öfundsýki í gangi því ég er aðeins búin að vera missa mig í fatakaupunum:) En allavega keypti á hann rosalega flotta Sketchers skó og nýja rakvél, mikið var hann glaður:D
Svo gaman að gera eitthvað svona fyrir hann...en bara svo við höfum mig á hreinu þá keypti ég að sjálfsögðu skó á mig í leiðinni...ég er svo góðSkömmustulegur.
Reyndar bara ódýra úr Hagkaup en samt þokkalega flottir, svört rúskins stígvél...mig vantaði rosalega svört stígvél:þ

Jæja læt þetta duga í bili, ekki svo langt í að bollan vakni.

P.s. setti inn nýjar myndir
Heyrumst:)

25. febrúar 2008 klukkan 13:54
Hæ hó:)

Hér er allt við það sama, er enn að fara eftir prógramminu en er þó að reyna bæta við mig hér og þar. Þetta er frekar erfitt því ég er alveg rosalega föst í því að mega bara borða svona og hinseginn og ég þori alls ekki út í sykurinn strax svo ég læt allt svoleiðis vera. Reyni að nýta allt extrað mitt sem ég hef ekki verið að gera mikið af og það er nóg auka í bili eða svona. Fékk mér reyndar Dominos pizzu í gær en þar sem ég var svo södd eftir það þá gat ég ekki klárað ávextina mína og mjólkurskammtinn svo ekki varð mikið auka úr því.
Ég verð að reyna finna eitthvað út úr þessu, ég er bara svo hrædd um að þyngjast aftur að ég er ekki að koma mér í það að borða meira. Eitthvað verð ég þó að finna út úr þessu því ég vil helst ekki léttast mikið meiraÓákveðinn. Ég er að hugsa um að taka helgarnar í meira át, fá mér t.d. pizzu á föstudögum án þess að sleppa brauðinu og gera mér svo gómsæta DDV væna rétti þó ég sé búin með extrað mitt.

Sykurinn fer ég ekki í strax, mér er ekki treystandi fyrir honumHlæjandi

Heyrumst....